Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Greiðslumark færist til Norðvesturlands
Mynd / Anita Jankovic - Unsplash
Fréttir 11. apríl 2024

Greiðslumark færist til Norðvesturlands

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Um sjötíu prósent mjólkurkvóta sem skipti um eigendur á síðasta tilboðsmarkaði fór á bæi á Norðurlandi vestra.

Matvælaráðuneytið tilkynnti niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur sem var haldinn 2. apríl síðastliðinn. Af þeim 888.000 lítrum sem viðskiptin náðu til fóru 390.000 lítrar til Skagafjarðar og 233.500 lítrar á starfssvæði Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Ríflega helmingur af því greiðslumarki sem selt var, rúmlega 486.000 lítrar, fór frá búum á Suðurlandi.

Jafnvægisverð lækkaði milli markaða, reyndist 280 krónur en var 300 krónur á síðasta markaði, í nóvember 2023. Tölur síðustu tilboðsmarkaða benda til minnkandi eftirspurnar eftir mjólkurkvóta.

Aðeins þriðjungur þess greiðslumarks sem boðið hefur verið til sölu á síðustu tveimur tilboðsmörkuðum hefur skipt um eigendur. Fyrir árið 2023 seldist alltaf allt það greiðslumark sem boðið var til sölu.

Kauptilboðum fækkar milli ára

Bændum sem sækjast eftir kaupum á greiðslumarki hefur fækkað verulega frá árinu 2020. Fjöldi gildra kauptilboða voru 218 talsins á aprílmarkaði ársins 2020 en þau voru 57 talsins nú í byrjun apríl 2024. Á sama tíma hefur fjöldi sölutilboða aukist nokkuð, voru níu talsins í apríl árið 2020 en þrjátíu nú síðast.

Talsvert mikil útjöfnun

Rafn Bergsson, formaður búgreinadeildar nautgripabænda hjá Bændasamtökum Íslands, telur að samspil ýmissa þátta dragi úr kauptilboðum bænda.

„Það er greinilega minni eftirspurn eftir greiðslumarki, sem er í takt við það sem við höfum séð á síðustu mörkuðum. Samfara því er verð að lækka. Ástæðurnar fyrir þessu eru helstar að fyrir liggur loforð um að verð á umframmjólk verði ekki lægra en 85 kr/l á þessu ári. Síðustu ár hefur verið talsvert mikil útjöfnun. Það er að framleiðendur sem framleiða umfram greiðslumark hafa fengið fullt verð fyrir stóran hluta af þeirri framleiðslu. Auk þess eru vextir gríðarlega háir núna. Þetta allt dregur úr hvatanum til að fjárfesta í greiðslumarki við núverandi aðstæður,“ segir Rafn. 

Framhald á bls. 2 í Bændablaðinu sem kom út í dag

Sama sláturhús sektað þrisvar
Fréttir 17. maí 2024

Sama sláturhús sektað þrisvar

Matvælastofnun (MAST) hefur þrisvar sinnum á þessu ári lagt stjórnvaldssekt á sv...

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna
Fréttir 17. maí 2024

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna

Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga af rekstri félagsins á árinu 2023 reyndist rúml...

Vorverkum bænda seinkar
Fréttir 16. maí 2024

Vorverkum bænda seinkar

Veturinn sem leið var sá kaldasti frá vetrinum 1998 til 1999, samkvæmt tíðindum ...

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára
Fréttir 16. maí 2024

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára

Landsáætlun um riðuveikilaust Ísland hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda.

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði
Fréttir 16. maí 2024

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði

Grunnur undir kornþurrkstöð í Eyjafirði er nú að taka á sig mynd í landi Laugala...

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu
Fréttir 16. maí 2024

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu

Kúabændur á starfssvæði Auðhumlu mega gera ráð fyrir arðgreiðslu frá samstæðunni...

Vetnisknúin skip í smíðum
Fréttir 15. maí 2024

Vetnisknúin skip í smíðum

Smíði er hafin á tveimur vetnis­ skipum á vegum Samskipa. Áætlað er að þeim verð...

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...